Bann við hjónaskilnaði presta

Þessa daga var ég búinn að tengjast nokkrum gömlum vinum mínum á Facebook. Þeir eru allir vinir þegar ég var í prestaskóla í Tókýó. Skólinn (Japan Evengelcal Lutheran Semminary) stóð ásamt Japan Lutheran Theological College. Prestaskólinn var ,,sérskóli", en JLTC var venjulegur skóli og það var einnig verferðarskor til staðar.

Strákur, sem var að læra verferðarmál þegar ég var þar, birtist nú sem prestur á Facebook. Kirkjan hans er ekki lúthersk og tilheyrir annarri mótmælandakirkjudeild. Við spjölluðum á Facebook og skiptum fréttum hjá hvorum okkar, þ.á.m. skildi ég við konuna mína fyrir 13 árum. Þá sagði hann eitthvað athyglisvert við mig :

,,Í minni kirkju, verður prestur að hætta að vera prestur ef hann skilur við maka sinn. Reglan kveður á það skýrt". Hann sagði mér að annar prestur (sem var í annarri kirkjudeild en hans) móðgaðist þegar hann sagði frá þessu og hvarf úr Facebook-vinalistanum hans. 

,,Það eru einnig reglur eins og t.d.: má hvorki drekka né reykja, má ekki spila fjárhættuspil - má ekki einu sinni kaupa lóttó...": hélt vinurinn minn áfram. Hann virðist ekki vera ánægður með þessum reglum sjálfur.

Í móðurkirkju minni, Japan Evangelical Lutheran Church, er ekki slík regla til, sem bannar presti að skilja við maka sinn. Hins vegar þekki ég dæmi nálægt mér um fráskilinn prest, en hann tapaði trausti fólks í safnaði sínum eftir hjónaskilnaðinn sínn. ,,Hvernig kennir maður öðrum um trú, sem getur ekki einu sinni verndað fjölskyldu sína?" Slíkt viðhorf er enn til staðar meðal kristins fólks í Japan.

Allavega sýnist mér að ég standi ekki á sama grunn og kirkjan vinarins míns. Jafnvel þó að við séum á sama grunn, er það vist mikil fjarlægð á milli okkar. Ég veit ekki hvað guðfræðilegur grunnur reglunnar um bann við skilnað prests er, en það er ekki svo erfitt að giska á að það sé tengt annað hvort við bókstaflegan skilning á Biblíunni, eða við viðhorf eins og ,,prestur á að vera til fyrirmyndar fólks að öllu leyti".

Ég mun segja vininum mínum að í kirkjunni minni hér á Íslandi þjóna margir prestar sem þekkja um hjónaskilnað af eigin reynslu sinni. Og sem tengt efni skal ég koma því á framfæri að við getum gift fólk af samkynhneigð núna og ég var nýbúinn að njóta þessara forréttinda með gleði. Ef fólk í safnaðinum vinarins míns væri Facebook-friends mínir, myndu þeir ekki hverfa úr listanum eftir klukktíma? (myndi ég sakna þeirra? FootinMouth

Kirkja er ekki eins. Kristið fólk er ekki heldur eins. Við eigum ekki að gleyma þessari staðreynd þegar við tölum um kirkju eða kristið fólk. Kirkja og fólk í henni er einnig í fjölbreytleika. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yfir 30 þúsund mismunandi túlkanir á biblíu; Biblían er þannig bók að hú styður allt og er á móti öllu, sem slík þá er hún ómarktækt plagg.
Við vitum öll hvers vegna kristnar kirkjur, íslenska þjóðkirkjan giftir ´nú samkynhneigða, er með kvenbiskupa og presta, það er vegna þess að starfsmenn kirkjunnar vilja vera á ríkisspenanum..
Ef þetta fólk væri í alvöru að taka mark á biblíu, þá væri fólkið búið að gefa eigir sínar, yfirgefa fjölskyldu sína.. án þess að kveðja; hugsaði ekki um eigin líkama eða hvar það fái að borða; Notaðist við fugla til að lækna sjúkdóma.. það er svo margt sem þið sem segist vera kristin gerið ekki.. þó svo að biblían fari fram á það...
Þið vitið innst inni að guð er bara snuð fyrir fullorðna

Peace

DoctorE (IP-tala skráð) 21.8.2012 kl. 14:12

2 Smámynd: Toshiki Toma

Sæll, DoctorE.

Langt síðan ég heyrði í þér í síðast. Gaman að heyra frá þér aftur.

Kveðja,

Toshiki

Toshiki Toma, 21.8.2012 kl. 14:43

3 Smámynd: Svala Erlendsdóttir

Við eigum að elska náungann :) Prestar eru menn en ekki guðir og við eigum að passa að setja þá ekki á stall.

Svala Erlendsdóttir, 23.8.2012 kl. 18:33

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband