Muldur gamals innflytjanda

Í vor eru 20 ár liðin frá því að ég flutti hingað til Íslands. Það virðist fara eftir manni sjálfum hvort maður geti aðlagast nýju landi fljótt eða það taki langan tíma. Ég veit ekki sjálfur hversu vel ég er búinn að aðlagast að íslensku lífi. T.d. á ég ekki í svo alvarlegum erfiðleikum með að skrifa íslensku eða lesa, þvert á móti, en ég er ennþá mjög lélegur í að tala á íslensku. Satt að segja á ég ekki lengur von á því að tala prýðilega íslensku frjálslega.

Það er oft bent á, þegar rætt er um líf innflytjenda á Íslandi, að innflytjendur móti lítinn heim með samlöndum sínum og blandist ekki með Íslendingum. Að þessu leyti held ég að það hafi gengið vel hjá mér. Frá um árinu 2000, eftir að ég hafði náð tökum á tungumálinu, hafði ég orðið meiri samskipti við Íslendinga en samlanda mína. Mig langaði að ganga í „íslenska samfélagið". Ég hafði gott samstarfsfólk t.d. í Alþjóðahúsi og á Mannréttindaskrifstofu Íslands, og um leið var það góðir vinir einnig í einkalífi mínu.

Engu að síður er ég búinn að uppgötva nýlega að ég eyði mikið meiri tíma með Japönum en Íslendingum núna, ef marka má frítíma minn. Íslenskir vinir voru horfnir á meðan ég var óvitandi um það og skyndilega sit ég í miðju „Little Tokyo"! Að sjálfsögðu er þar ákveðin ástæða á baki, eins og jarðskjálftinn í fyrra í Japan og ýmis starfsemi vegna hans, fyrir hvers vegna ég hef verið mikið með Japönum þessa daga.

En það er ekki allt. Sannleikurinn er sá að mér finnst þægilegt að vera með öðrum Japönum. Auðvitað er þar ekket tungumálsvesen og við eigum sameiginlegan grunn sem samlandar. Auk þessa meta Japanir aldursmun mikið og yngra fólk sýnir virðingu fyrir sér eldri. Flestir Japanir hérlendis eru talsvert yngri en ég og ég er nátturlega eins konar „Gamli góði" með lengri reynslu og meiri þekkingu en aðrir Japanir. Jú, manni liður vel í slíkum aðstæðum.

Menn segja að freistni djöfuls sé sætt. En gildra lífsins hlýtur að vera skreytt með þægindum. „やばい! Yabai!" (Hættulegt!) Ég á ekki að sitja í slíkum þægindum lengi. Geri ég það, verð ég búinn. Líklega gildir þetta um ykkur líka sem eruð ekki innflytjendur. Þegar við vorum ung völdum við harðari leið til að fara fremur en auðveldari, af því að við vissum að við næðum ekki til drauma okkar ef við myndum kjósa auðveldari leið. En hvað um þegar við erum búin að fá lítinn bita draumsins og smakka nokkur þægindi? Ómeðvitað gætum við byrjað að kjósa auðveldari leið. En þá dveljum við líklegast á sama stað og förum ekki áfram lengur.

Fyrir 20 árum flutti ég til Íslands til að lifa lífi mínu að fullu hér, en ekki til að fela mig í litlu Japan á Íslandi. Nú er tími kominn fyrir mig að kveðja „Little Tokyo" og reyna að fara aftur í íslenska samfélagið. Að sjálfsögðu ætla ég ekki að forðast samlanda mína. Þeir eiga jú að vera mikilvægur hluti af „íslenska lífi" mínu.

Mér finnst aðlögun ekki vera auðvelt verkefni. Og raunar varðar aðlögun ekki einungis fyrirhöfn mína, heldur líka móttöku Íslendinga í kringum mig. Kæru Íslendingar, viljið þið vera svo væn að verða að vínum mínum?

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Sæll Toshiki, sko þetta með stafsetningu er ekki svo alvarlegt mál allavega ekki á blogginu. Ég er búinn að vera úti ca. 35+ ár og stafsetningin þvælist fyrir mér alla daga. Má þar kenna Sænskunni og Norskunni um og þá mest þeirri síðari. Ég lærði að skrifa Sænskuna fyrst og gekk vel af því að hún er aðlöguð scandinavískunni eins og td. ambulanc,baby og líknandi óþverri. Norskan er aftur á móti ekta en með nýnorsku þvælu í eftirdragi. Hér er ekkert svoleiðis að flækja málið nema enskuslettur og "ógeðslega fallegt" sem er alveg út úr kortinu og látið viðgangast?!?.

Eyjólfur Jónsson, 11.5.2012 kl. 20:37

2 Smámynd: Toshiki Toma

Sæll, Eyjólfur.

Takk fyrir þetta. Ég var næstum að skrifa "takk fyrirr kommntið", en komment er kannski ekki rétt orð á íslensku? :-)

"Að tékka" "að faxa" "að emaila" "ókeijaður" ... svona er ný íslenka?

Ég lærði pínulitið dönsku, en danska er líka með skrýtin áhríf ensku og frönsku, held ég!

Toshiki Toma, 11.5.2012 kl. 20:55

3 Smámynd: Sigurbjörn Sveinsson

Þetta er áhugaveður vinkill frá íslenskum Japana eða japönskum Íslendingi. Það er umhugsunarvert að það tók allt að þrjár kynslóðir Íslendinga að verða Kanadamenn og mér finnst þú hafa náð furðugóðu lagi á að vera Íslendingur.

Og þú ert bara ein kynslóð.

Sigurbjörn Sveinsson, 11.5.2012 kl. 21:26

4 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Jú maður fær notalega tilfynningu í hjartaræturnar þegar maður sér hvað sumir leggja á sig til að læra íslensku og fyrir þig Toshiki, er þetta afrek drengur góður!!

Eyjólfur Jónsson, 11.5.2012 kl. 22:19

5 Smámynd: Gústaf Níelsson

Þér hefur ekkert dottið í hug að fara heim og miðla af reynslu þinni?

Gústaf Níelsson, 11.5.2012 kl. 22:49

6 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Sæll gamli ágæti innflytjandi og vert þú velkomin Toshiki Toma.  Ég er trúlega gamaldags og að sjálfsögðu verulega þverlyndur og íhaldssamur. 

Ég held að fáar þjóðir hafi verið eins vel undir það búnar andlega og Japanir, að fást við hörmungar eins og þennan hörmulega Jarðskjálfta og afleiðingar hans.  Þar með veist þú álitmitt á þinni fornu menningar þjóð.

Þú skalt ekkert skammast þín fyrir smá vandræði með Íslenskt ritmáli, vegna þess að þeir sem fengu það hlutverk að endursmíða það eftir árhundruða Danskt stofnana mál, voru hálf dönsk merkikerti sem gátu ómögulega látið það vera að láta visku sína í ljós og þar inní Dönsku og þýsku, skóla fólki Íslensku til hrellingar.  Um þetta mætti skrifa langt mál, en það ætla ég ekki að gera.   Hafðu góða daga Toshiki Toma. 

                               Fyrirgefðu forvitnina, en hvað þíðir nafnið þitt?  

Hrólfur Þ Hraundal, 12.5.2012 kl. 12:49

7 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Fyrirgefðu klaufaskapinn.  Átti að vera (og blanda þar inní Dönsku og Þýsku, )

Hrólfur Þ Hraundal, 12.5.2012 kl. 12:53

8 identicon

Ekki málið vinur, ég tek þér fagnandi.

Góðir innflytjendur líkt og þú eiga hrós skilið.

Ég bý sjálfur í danaveldi og þekki á eigin skinni hve erfitt getur verið að aðlagast nýju samfélagi.

Samt er mun meiri munur á Japan og Íslandi heldur en Íslandi og Danmörku.

Ég hef alltaf haft ómælda virðingu fyrir Japönum, þið eruð duglegt og ærlegt fólk.

Vertu velkominn Toshiki Toma (kannski 20 árum of seint en betra er seint en aldrei ;))

runar (IP-tala skráð) 12.5.2012 kl. 16:29

9 Smámynd: Toshiki Toma

Þakka ykkur fyrir athugasemdirnar, gott fólk.

Ég hef aldrei hugsað um að fara til baka til Japans, nema að fara í heimsókn tik foreldranna minna

Fyrstu 5,6 ár voru sérstaklega erfiðir dagar, en samt vonaði ég aldrei að fara til baka. Fyrir mig var það gott að ég ákvað að búa hér og gera Ísland heima.

Toshiki Toma, 12.5.2012 kl. 18:15

10 Smámynd: Toshiki Toma

Og þakka innilega fyrir flýju orðin í garð mins.:-)

Toshiki Toma, 12.5.2012 kl. 18:18

11 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Til þess að vera alvöru Íslendingur þá þarft þú að læra og skilja að Íslendingur spyr alltaf, hvaðan ert þú. 

Erlendir menn verða oft undrandi og tortryggnir við svona spurningu, en svo kemur brosið þegar þeir átta sig á því að um er að ræða eðlilega forvitni, sem til verður í fámennis samfélagi.    

Hrólfur Þ Hraundal, 12.5.2012 kl. 19:16

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband