21.6.2007 | 13:39
Borgað fyrir bloggfærslur?? - Um blogg (2) -
Sænska dagblaðið Metro hefur byrjað að borga fyrir bloggara sína. Viðbrögð helstu umsjónarmanna með vefsviði í íslensku fjölmiðlunum virðast mjög jákvæð yfirleitt og taka það sem eðlilega þróun.
Ég held það líka. En um leið langar mig til að benda á aðra hlíð þessarar þróunar sem ég vil að fjölmiðlaaðilar velti fyrir sér.
1. Uppbygging siðregla
Mér sýnist að siðreglukennd fólks vera lausari en þegar það skrifar aðsenda grein til blaðs. Þetta er kannski vegna þess að bloggið er nýtt fyrirbæri milli opinbers færis og einkamála.
Ég held að allir vita um það vel en siðleysi og dónaskapur sést bara algengt, sérstaklega, í athugasemdum í bloggum og umræðuþráðum. Umræðuþráður er oft aðskilinn vettvangur frá bloggsviði og það gæti verið ósanngjarnt að fjalla um blogg og umræðuþráð saman. En blogg innifelur sér umræðu ávallt að nokkru leyti, því sé ég sameiginlegt eðli milli þessa tveggja.
Ég vil sýna dæmi um siðlauss málflutnings, en ekki núna heldur á eftir. Við, sem sagt fjölmiðlarnir og notendur vefsviðs, verðum að byggja upp almennar siðreglur í þessum nýja heimi. Ég meina, ekki bara að við kveðum á siðreglur á ákveðna vefsiðu, heldur við látum siðreglurnar virka í raun.
2. Blogg eða aðsend grein?
Það blasir við að aðal blöðin á Íslandi hyggjast minnka pláss fyrir aðsendar greinar við hlíðina þess að hvetja þátttöku í bloggum. Það hefur verið sjáanleg vesen t.d. hjá Mbl. að aðsendar greinar flæða til sín fleiri en það getur fjallað um. Því er þessi breyting að færa aðsendar greinar til bloggs skiljanleg.
Hins vegar er eðli aðsendra greina ekki alveg sama og skrifa í bloggum. Aðsendar greinar í blöðum eru meira fyrir ótiltekið fólk en í bloggum. Þegar t.d. einhver háskólanemi er með brennandi skilaboð til samfégas og skrifa grein um það. Ef greinin birtist í blaði, þá mun greinin hafa meira áhrif á fjölda manna en í birting í bloggi.
Þetta er bara ágiskun mín, satt að segja. En vinsamlegast íhugið málið: hvers oft skoðið þið blogg einhvers, sem þið þekkið ekki og hafið aldrei nafn höfundar hingað til? Jú, stundum skoðum við blogg ókunningja, þegar við höfum góðan tíma og förum í skoðunarferð á bloggheim. En mér sýnist að blogg sé bundið við það atriði hvort bloggarinn sé vel þekktur eða ekki meira en þegar aðsend grein í blaði er að ræða.
Aðsnd grein í blaði fær freira tækifæri til að rekast á augu almennings.
Þess vegna þykir mér leitt ef rými fyrir aðsenda greina verður skorið út of mikið og fólk tapar tækifæri til að njóta blaðsiðu fyrir tjáningarfrelsi sitt.
Nú þegar sé ég meira um fastapenna en venjulega penna í blöðum nokkrum. Þá sjáum við alltaf sama fólkið og hlustum á sömu raddirnar í blöðum.
Er það sem við viljum í raun?
Borgað fyrir bloggfærslur
Hugsanlegt að íslenskir bloggarar fái borgað fyrir hverja heimsókn sem þeir fá
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson, 21.júní 07 MBL. bls.16
SÆNSKA dagblaðið Metro hefur bryddað upp á þeirri nýjung að borga bloggurum á vefsvæði sínu fyrir hverja heimsókn sem þeir fá. Um er að ræða þrjá sænska aura fyrir hverja heimsókn, sem nemur um 27 íslenskum aurum fyrir skatt. Til þess að komast á slíka launaskrá þarf viðkomandi bloggari þó að fá í það minnsta 5 þúsund heimsóknir fyrsta mánuðinn.
Vinsælustu bloggarar Íslands, á borð við Egil Helgason og Ellý Ármannsdóttur, fá um þessar mundir 50 til 60 þúsund heimsóknir í hverjum mánuði, og miðað við sænska módelið gætu þau því haft 13 til 16 þúsund krónur í tekjur af því. Ef þau hins vegar myndu blogga fyrir Metro, og 1/6 hluti sænsku þjóðarinnar myndi heimsækja bloggið líkt og hér, væru tekjurnar um 400 þúsund á mánuði.
Ekki slæm hugmynd
"Við höfum ekki greitt bloggurum til þessa, þótt vissulega megi færa rök fyrir því að þeir séu að eyða tíma í að skrifa efni sem er vinsælt. Þannig að það er ekki hægt að horfa framhjá því að þetta er þróun sem við þurfum að horfa til," segir Ingvar Hjálmarsson, vefstjóri Mbl.is. ..... (continued)