20. júní Flóttamannadagur / June 20th The world refugee day


Þann 20. júní verður alþjóðadagur flóttamanna eða the world refugee day. Hér á Íslandi verður sér-kynningarbás á málefnið haldið á Austurvelli af RKÍ milli kl. 14:00 og 18:00. Þar verður kynnt móttaka flóttafólks á Íslandi, starf UNHCR og flóttamannavandinn í heiminum. Og mér skilst að þar verði einnig sýning leikrits “Á flotta” og fleira virkari sýning en bara útskýring um málefnið og hefðbundnar myndir.

Ég las mjög fróðlega greinargerð um daginn eftir Lydíu Geirsdóttur, verkefnistjóra Hjálparstarf kirkjunnar (/www.tru.is/pistlar/2007/6/milljardur-manna-a-flotta-arid-2050).
Í henni segir Lydía : “Í dag eru um 160 milljónir manna flóttamenn” og einnig :

“Á dögunum kom út skýrsla frá hjálparstofnuninni Christian Aid í Bretlandi, þar em farið er yfir hvernig loftslagsbreytingar muni hafa áhrif á flóttamannastrauminn í heiminum. Talið er að allt að 1 milljarður manna gæti hrakist á flótta af þessum orsökum fram að árinu 2050 ef ekkert verður að gert til þess að stöðva hlýnun jarðar”.

Við hugsum (a.m.k. hugsa ég) flóttamannamál kannski oftast í tengslum við stríð eða náttúruhamfarir, en lúmsk breyting náttúru á jörðinni hefur líka áhrif á málin. Sannarlega þarf ég að bæta þekkingu um flóttamannamál og skilja þau betur.
Ég vil hvetja ykkur að njóta þess tækifæris 20. júní á Austurvelli sömuleiðis og ég, og kynnast mál flóttamanna betur og meira.


World Refugee Day

20 June For years, many countries and regions have been holding their own Refugee Days and even Weeks. One of the most widespread is Africa Refugee Day, which is celebrated on 20 June in several countries.

As an expression of solidarity with Africa, which hosts the most refugees, and which traditionally has shown them great generosity, the UN General Assembly adopted Resolution 55/76 on 4 December 2000. In this resolution, the General Assembly noted that 2001 marked the 50th anniversary of the 1951 Convention relating to the Status of Refugees, and that the Organization of African Unity (OAU) had agreed to have International Refugee Day coincide with Africa Refugee Day on 20 June. The Assembly therefore decided that, from 2001, 20 June would be celebrated as World Refugee Day.
[Note: The OAU was replaced by the African Union on 9 July 2002.]

- USA for UNHCR https://secure.usaforunhcr.org –
 

                                   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgerður Halldórsdóttir

Athyglisverð tenging við loftlagsbreytingar - staðfestir enn frekar afstöðu mína gegn aukinni stóriðju og mengun!

Valgerður Halldórsdóttir, 18.6.2007 kl. 12:05

2 Smámynd: Lára Stefánsdóttir

Spurning hvort við erum ekki með flóttamenn á Íslandi vegna starfsháttabreytinga. Fólk þarf að flytja af heimili sínu sem er orðið verðlaust en situr uppi með skuldir. Síðan þarf það að reyna að fóta sig í nýju samfélagi oft með lág laun, háa húsaleigu og reyna að standa við skuldir í tómu húsnæði úti á landi. Oft dæmir fólk sig til örbirgðar upp frá þessu þar sem það er komið fram yfir miðjan aldur og hefur ekki tök á að mennta sig til nýrra starfa.

Hér held ég að sé verk að vinna og mikilvægt að skoða hvað verður um fólkið okkar sem flosnar upp.

Lára Stefánsdóttir, 18.6.2007 kl. 12:17

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband