21.8.2007 | 11:59
Aðeins meira um að elska sjálfa/n sig
Ljóð sólarinnar
Hvað hefur þú læknað margar sálir
með hlýjum kærleika þínum?
Hvað hefur þú hlýjað mörgum hjörtum
með björtu brosi þínu?
Hve mörgum hefur þú fært þýðingu lífsins
með hreinni hugulsemi þinni?
Særðar sálir finna stað til að hvílast.
Þurr hjörtu fá raka
og þeir sem villst hafa, rata sína leið.
Allar sálir fagna þér og dást að.
Þær kalla þig sólina sína, sól sálnanna.
Hverjir vita um endimörk krafts sólarinnar?
Hvaða spámenn mæla fyrir að dagurinn muni koma,
dagurinn þegar sólin veiklast og dregur mátt úr henni?
Vindar úr vægðarlausum stormi berja þó sólina
og bylgjur úr köldum sjávarfjöllum þjóta enn til hennar.
Sólinni bregður en hún brennur ekki lengur.
Sólskin týnist í köldu myrkri og jörðin kólnar.
Allir á jörðinni vita, að þeir eru að tapa sólinni sinni.
Á svörtu köldu hrauni sitja sálirnar og bíða eftir sólinni.
Þær sakna hennar og gráta hana.
Sálirnar heyra fjúk í hrauni en fá engin svör.
Þær hníga af kyrrð, því þær þekkja ekki orð til að gefa frá sér.
Sólin heyrir grát sálnanna og hún grætur sjálf.
Þótt hún leiti til skaparans, heyrast engin svör.
Á spegli kalds vatns finnur sólin sjálfa sig og horfir á.
Hún hnígur til kyrrðar, því hún þekkir sig ekki, sólina án ljóss.
Hvar eru stórir lófar sem taka á móti sólinni
og víkja henni úr hyldjúpu köldu myrkri?
Hvar eru hlýjar hendur sem halda í hönd sólarinnar,
og leiða hana í róandi grænan dal?
Hvar eru sterkir armar sem faðma sólina að sér,
og kveikja hjá henni brennandi heitt líf á ný?
Sólin fer í ferð til leitar,
leitar að honum, skaparanum.
Yfir draugalegan hraunvöll fer sólin alein.
Í hvert skipti spyr hún um skaparann
þegar hún mætir einhverjum á leiðinni.
Enginn veit hvar hann er, enginn þekkir hvaðan hann kemur.
Þótt vonbrigði séu þung á fótum sólarinnar, dregst hún áfram.
Í dimmum dal er hún komin í þorp særðra sálna.
Þar hittir hún margar sálir,
sálir sem þarfnast lækningar og umhyggju.
Sólin lítur í andlit hverrar sálar og kyssir þau.
Þar á meðal sér hún sál sem er að deyja.
Það er enginn litur í andlíti hennar,
og það er ekkert líf í augunum á henni.
Á höfði hennar sést stórt gat eins og tunglið.
Æ, hvað kom fyrir, stelpan mín?
Undir þungum andardrætti svarar dauða sálin:
Sólin mín.... ég er sál þín, þín elsku stelpa.
Á svörtu köldu hrauni hnígur sólin niður grátandi.
Eigin sál sólarinnar liggur þar eins og aðrar særðar sálir.
Engin sál þar er ómeidd, engin sál er án sorgar.
Hún snertir kinnar stelpunnar með lófum sínum og kyssir þær.
Hún heldur í hendur stelpunnar mjúkt en fast.
Lófarnir á sólinni eru stórir og hendurnar hlýjar.
Hún faðmar að sér sálina sína með sterkum örmum sínum.
Hún stendur upp og segir: Förum heim, elskan mín.
Allar sálir skynja að jörðin hreyfist undir,
og að um himininn geysast vindar.
Öll vötn á jörðinni veltast í hringiðu,
og myrkrið skerst með eldingu sem fer ofan himininn.
Þær heyra gleði skaparans:
Þetta er líka mitt elskaða barn, sem ég hef velþóknun á.
Skaparinn álítur það gott að sólin skíni einu sinni enn,
að sólin skíni með særða sál sína.
Þú kemur upp á morgnana eins og sjálfsagt er,
en allir skynja hlýrra og mýkra sólskin en áður.
Sálirnar fagna þér og dást að.Þær kalla þig sólina sína, sól sálnanna.
- jól, 2001
Aðeins meira um að Þú skalt elska sjálfa/n sig eins og náunga þinn í öðruvísi nálgun.
Þetta er fyrsta ljóð (prósakvæði) sem ég samdi á íslensku. ég veit að þetta sé ekki nægilega ljóðrænt samt er ég hrifinn af þessu sjálfur!
Meginflokkur: Ljóð | Aukaflokkur: Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:04 | Facebook
Athugasemdir
Alveg yndislegt takk
Hafðu það gott!
Þóra I. Sigurjónsdóttir, 21.8.2007 kl. 14:10
Takk kærlega fyrir, Þóra mín
Toshiki Toma, 21.8.2007 kl. 17:49
Mjög fallegt og jafnframt til umhugsunar.
Takk fyrir að deila þessu með okkur.
Þórdís (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 20:42
Kæra Þórdís,
Þakka þér fyrir þetta. Alltaf gaman að fá viðbrögð um ljóð!!
Toshiki Toma, 21.8.2007 kl. 22:26
Toma alveg ljómandi fín lesning og eins og gott ljóð fær mig til að hugsa um eitthvað mér æðri sem er jú gott fyrir sálarlíf mitt takk kveðja Úlli.
Úlfar Þór Birgisson Aspar, 22.8.2007 kl. 00:30
Úlli, takk kærlega fyrir til þín líka!
Toshiki Toma, 22.8.2007 kl. 10:32
Ég er líka hrifin....
Greta Björg Úlfsdóttir, 22.8.2007 kl. 10:59
Takk, Greta, saumakonan! Mig langar til að þakka til hvers og eins sem er góð/ur við ljóð mitt!!!
Toshiki Toma, 22.8.2007 kl. 11:53
Thetta er fallegt ljóð, Kvedja María
Athugasemd sem ég gerði thar sem ég var að hrósa ljóðinu,fór á vitlausan stað.
María Anna P Kristjánsdóttir, 22.8.2007 kl. 19:02
Takk, María. Big kiss to you!!
Toshiki Toma, 22.8.2007 kl. 19:19
Takk, takk, takk. Dúa.
Toshiki Toma, 23.8.2007 kl. 11:31
Hef fylgst með þér öðru hvoru og kvitta nú fyrir mig , alltaf gott að lesa pistlana þína og mjög hrifin af ljóðinu. Takk fyrir mig
Báran, 26.8.2007 kl. 11:54
Kæra Báran, þakka þér fyrir hjlyju orðin þín!! Glelðja mig mikið.
Toshiki Toma, 26.8.2007 kl. 12:18