Verðlaun og íbúafjöldi í ólympíuleikum


Í Peking olýmpíuleikunum fékk kínverska keppnisliðið 51 gullverðlaun og fjöldi gullverðlauna fyrir kínverska liðið er í fyrsta sæti meðal þátttökuþjóðanna. Kínverjir voru mjög duglegir í leikunum í þetta skipti og einnig fengu þeir 21 silfurverðlaun og 28 bronsverðlaun, allt samtals 100 varðlaun.
Bandaríkumenn fengu 36 gull, 38 silfur og 36 brons, samtals 110 og Bandaríkin voru í fyrsta sæti í fjölda allra verðlauna.
Rússar fylgja þeim: 23 gull, 21 silfur og 28 brons, samtals 72 verðlaun.
Heimaland mitt, Japan, fékk 9 gull, 6 silfur og 10 brons.

Mér sýnist það sé mjög eðlilegt að stór þjóð fleiri verðlaun en lítil þjóð eins og t.d. Ísland eða Dominica. Og ég var aðeins forvitinn hvernig samband fjölda verðlauna og íbúafjölda í hverri þjóð og reiknaði það.

Niðurstaðan er eins og eftirfarandi:
Kína : eitt verðlaun per 13 millijóna menn.
USA: eitt verðlaun per 2,7 millijóna menn
Rússlandi: eitt verðlaun per 1,9 millijóna menn

Ísland: eitt verðlaun per 300.000 menn.

Sem sagt situr Ísland langt í fyrsta sæti meðal ofangreindra þjóða ef við skoðum fjölda verðlauna miðað við fjölda íbúa á landi!

Ef ég má bæta aðeins meira, eru Danir og Normenn líka duglegir í þessu atriði:
Danmörk: eitt per 700.000 menn
Noregur: eitt per 470.000 menn

Japan reiknast að eitt verðlaun per 4,8 millijóna menn.

Þetta er bara til gamans, en þetta bendir á það hve stórkostlegur árangur Íslendinga er.
Frábært að Ísland sendi landslið úr 300000 manna þjóð og van silfur!!
Til hamingju, Ísland!!
Wizard

* Það voru STÓR mistök hjá mér á reikningi í fyrstu færslu og Sigurður Þorsteinsson gerði athugasemd við þau mistök. Þakka innilega fyrir Sigurður. 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Hræddur er ég um að þessi útreikningar séu ekki alveg réttir. Á bak við hver verðlaun bandaríkjamanna eru 2.727.273 einstaklingar eða rúm 2,7 milljón, en á Íslandi eru það rúmlega 300.000.

Sigurður Þorsteinsson, 24.8.2008 kl. 20:39

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Það var mjög gaman að fylgjast með þessum ólympíuleikum, allt mjög vel skipulagt og leikgleði keppanda skein úr hverju andliti.

Ester Sveinbjarnardóttir, 24.8.2008 kl. 22:02

3 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Vertu velkominn á opnun á myndlistarsýningu okkar fimm bloggvinkvennanna; Elínar Bjarkar Gurðbrandsdóttur, mín, Guðnýjar Svövu Strandberg, Katrínar Níelsd., Katrínar Snæhólm og Zordísar. í Ráðhúsi Reykjavíkur, laugardaginn 30.okt. Opnunin stendur yfir frá kl. 15 til 17 og boðið verður upp á léttar veitingar.
Sýningin stendur til 14. sept.
 
Kveðja
Guðný Svava Strandberg.

Svava frá Strandbergi , 29.8.2008 kl. 23:11

4 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Það er svo gott að fá viðurkenningu. Öllum gott.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 1.9.2008 kl. 10:02

5 Smámynd: www.zordis.com

Ísland stóð sig vel og fagnaði ég með þeim fjölda við Arnarhól.  Flott hjá þeim!

www.zordis.com, 3.9.2008 kl. 11:11

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband