Lifandi bókasafn 17. júní!!


Jafnréttisnefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands höfum fengið vilyrði frá Reykjavíkurborg til þess að halda lifandi bókasafn 17. júní næstkomandi milli kl. 13:00 og 16:00 í húsnæði TM, Aðalstræti 6, jarðhæð.
Lifandi bókasafn starfar nákvæmlega eins og venjulegt bókasafn - lesendur koma og fá "lánaða" bók í takmarkaðan tíma.

Það er aðeins einn munur á:
bækurnar í Lifandi bókasafni eru fólk og bækurnar og lesendurnir eiga persónuleg samskipti. Bækurnar í Lifandi bókasafni eru fulltrúar hópa sem oft mæta fordómum og eru flokkaðir í sérstaka hópa, oft fórnarlömb misréttis og félagslegrar útilokunar. Í Lifandi bókasafni geta bækurnar ekki aðeins talað, heldur einnig svarað spurningum lesandans og þar að auki geta bækurnar jafnvel spurt spurninga og sjálfar fræðst.

- Fréttatilkynning frá Jafnréttisnefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands -


Ég upplifði sjálfur einu sinni áður að vera “bók” lifandi bókasafns í Smáralindi. Raunar var ég “bækur” sem prestur, Japani, einstæður faðir o.fl.

Mér fannst það gaman að vera bók og deila þekkingu og reynslu minni með kæru lesendum. Bókin gat lært ýmislegt frá lesendunum líka 
Grin

Þakka Jafnréttisnefnd Studentaráðs HÍ fyrir þetta. Vona að sem flestir skreppi í TM á Ingólfstorgi á morgun, hátíðardaginn, og njóti þess tækifæris!!




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk kærlega fyrir þátttökuna, frábært að kynnast þér  (alveg einstaklega skemmtileg og drífandi "bók") og enn skemmtilegra að lesa bloggsíðuna þína.

Fjóla Einarsdóttir (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 02:17

2 Smámynd: Toshiki Toma

Takk sömuleiðis. Mér fannst þetta gaman.
Við skulum halda lifandibókasafn í næsta tækifæri líka, með fleiri mismunandi bókum!!

Toshiki Toma, 23.6.2007 kl. 18:13

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband