Sunny days and Mondays are always getting me down..??


sjávarvindurinn hleypur burt
yfir græna grasflöt
dreifir gullnu gliti
og rekur upp kríur
kátur

dans er stiginn í lofti
í frjálsri hrynjandi
ball er augum fólgið
en fyllir mig sumargleði 

sjávarvindurinn siglir
yfir bláan hnött
sála mín afklæðist
og slæst með í för     
                        
                              
-sjávarvindur; júlí 2004- 
  


Komið þið sæl og blessuð.Ég var kominn úr frí og er að reyna að skipta lífsgír hjá mér í “working-mode” aftur en það virðist að taka tíma!
"Sunny days and Mondays are always getting me down " .. or keep me asleep. Sleeping

Ég vil þakka góðum bloggvinum mínum fyrir öllu góðu kveðjurnar sem ég fékk á meðan ég var í frí og einnig óska þess að allir hafi haft gott sumar. Yndislegt að hafa samskipti við ykkur og aðra – eftir að allt er komið er manneskja félagsleg sköpun.  

Ýmislegt hefur gerst kringum í mig- ekki beint um mig – bæði gleðilegt og sorglegt, jákvætt og neikvætt í sumar. Það er sönn ánægja mín að ég get deilt því með ykkur á blogginu. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þóra I. Sigurjónsdóttir

Já og velkominn úr fríinu.  Takk fyrir "athugasemdina" á blogginu mínu :) hehehe

Ég vona svo sannanlega að þetta gleðiríka og jákvæða hafi verið yfirsterkara því sorglega og neikvæða í fríinu þínu.

Hvernig væri bara að búa til frí-mode þegar maður þarf að vera í working-mode

...og passa alltaf að eitthvað skemmtilegt sé framundan....  æi það er svo gaman

Þóra I. Sigurjónsdóttir, 5.8.2007 kl. 22:45

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband