Veitum þeim vernd!


Nú stendur yfir norrænt átak sem ber yfirskriftina ,,Veitum þeim vernd!“ eða ,,Keep them safe“. Átakinu er ætlað að vekja athygli á stöðu hælisleitenda á Norðurlöndum en tuttugu norræn félagasamtök, m.a. Mannréttindaskrifstofa Íslands, Íslandsdeild Amnesty International og Rauði Kross Íslands, standa að undirskriftasöfnun þar sem stjórnvöld eru hvött til að virða og vernda réttindi flóttafólks.

Í tilefni af átakinu langar mig til að vekja athygli á að meðferð hælismála á Íslandi er ekki eins og best verður á kosið. Eins og kerfið er í dag þá hefst meðferðin með því að lögreglan tekur skýrslu af hælisleitandanum, síðan er athugað hvort annað land ber ábyrgð á því að vinna hælisumsóknina. Ef Ísland verður að fjalla um málið þá fer Útlendingastofnun yfir umsóknina, aflar gagna og ákveður síðan hvort umsækjandanum er veitt hæli eða ekki.

Þeirri ákvörðun getur umsækjandi svo áfrýjað til Dómsmálaráðuneytis sé hann ekki sáttur við niðurstöðuna. Ráðuneytið fer þá yfir ákvörðun Útlendingastofnunar og sker endanlega úr um hvort veitt er hæli eða ekki. Þessa ákvörðun getur umsækjandi síðan borið undir dómstóla, en þó ekki synjunina sem slíka heldur aðeins málsmeðferðina.

Það sem mig langar að vekja athygli á hér er að fólk fær ekki lögfræðiaðstoð við mál sitt meðan Útlendingastofnun fjallar um það. Þegar ákvörðun um synjun er áfrýjað á hælisumsækjandi rétt á takmarkaðri lögfræðiaðstoð en þetta er oft meira ,,pappírsvinna“ fremur en persónuleg aðstoð við einstaklinginn.

Kveðið er á um andmælarétt eftir endanlega synjun frá Dómsmálaráðuneyti í lögum, þ.e. að hælisleitandi getur höfðað mál fyrir dómsstólum en þetta er í fyrsta sinn í öllu ferlinu þar sem umsækjandi fær ,,faglega og persónulega“ lögfræðiaðstoð. Seint er betra en aldrei eða hvað?

Í lögunum segir: ,,Málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið frestar ekki framkvæmd hennar”. Þannig að þótt hælisleitandi höfði mál fyrir dómsstólum getur hann verið fluttur úr landi áður en dómur fellur. Og ef hann er fluttur úr landi fellur málið niður þar sem enginn á lengur lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr ágreiningsefninu.
Ég veit ekki hve margir hafa farið með mál sín fyrir dómstóla en ég þekki persónulega dæmi þess að umsækjandi var fluttur úr landi rétt áður en málið var tekið fyrir.

Það er merkilegt hversu stjórnvöld flýta sér að framkvæma brottvísun umsækjenda eftir að hafa stundum látið þá bíða á annað ár eftir úrskurði. Óttast yfirvöld að dómsstólar komist að annarri niðurstöðu en Dómsmálaráðuneytið? Ég vek athygli á því að eftir því sem ég best veit hefur ennið ekki fallið dómur varðandi synjun stjórnvalda um hæli.

Mér vitandi eru nokkrir menn nú með mál varðandi synjun fyrir dómstólum. Ég vona innilega að þeir verði ekki fluttir úr landi, í það minnsta ekki áður en dómur fellur og hvet almenning til að fylgjast með því að réttur þeirra til að fá skorið úr sínum málum fyrir dómstólum sé virtur.

(Fyrst birtist í Fréttablaðinu 5. október 2007)


Vinsamlegast takið þátt í undirskriftasöfnun!!

http://www.keepthemsafe.org/



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Búin að skrifa mig!

Greta Björg Úlfsdóttir, 16.10.2007 kl. 22:54

2 Smámynd: Toshiki Toma

Takk fyrir samstöðuna, Greta!

Toshiki Toma, 16.10.2007 kl. 22:59

3 identicon

Sæll Toshiki og takk fyrir pistilinn - hann er mjög góður. Má ég birta hann á bloggsíðu VG á Akranesi? (vitna að sjálfsögðu til heimilda)

Hjördís (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 11:31

4 Smámynd: Toshiki Toma

Sæl, Hjördís. Takk fyrir það. Að sjálfsögðu geturðu notað greinina eins og þú vilt.

Toshiki Toma, 17.10.2007 kl. 12:03

5 identicon

Sæll. Frábær pistill hjá þér

Elísabet (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 09:29

6 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Ég er mjög ósátt við málsmeðferð vegna dvalarleyfis útlendinga hér á landi eftir að hafa reynt að aðstoða manneskju til að öðlast slíkt. Ég trúði hreinlega ekki mínum augum og eyrum þegar ég komst að raun um hvernig tekið er á þessum málum.

gerður rósa gunnarsdóttir, 19.10.2007 kl. 17:01

7 Smámynd: Toshiki Toma

Sæl, Gerður Rósa.
En viltu ekki skrifa um þá reynslu þína í bloggi þínu eða jafnvel í blað?? Mér finnst það mjög mikilvægt að fólk vita hvað gerist í raun. Mig langar til að hvetja þig að gera það.

Toshiki Toma, 19.10.2007 kl. 20:03

8 Smámynd: gerður rósa gunnarsdóttir

Góð ábending, Toshiki. Vandinn við það er að það eru nokkur ár síðan, og ég man ekki lengur nákvæmlega ferlið og hver sagði hvað. Það vísuðu yfirleitt allir hverjir á aðra; ég man t.d. að þegar loksins tókst að ná í skottið á framkvæmdastjóra eða forstjóra Útlendingaeftirlitsins, eftir að hafa reynt að tala við undirmenn hans án mikils árangurs - enda virtist bara um færibandavinnu að ræða hvað varðaði svona útlendingapappírsmál -  þá vísaði hann á afgreiðslustúlkuna, sem hafði þvegið hendur sínar af öllu saman og bent okkur á að tala við hann sjálfan. Það vannst ekki tími til að færa fram kæru vegna þess að útlendingsgreyið hafði fengið ábendingu um yfirvofandi brottvísun allt of seint - nokkrum mánuðum eftir að það lá ljóst fyrir (og án þess að hann hefði hugmynd um að slíkt væri yfirvofandi því hann hélt sig hafa fylgt í öllu þeim reglum sem um ræðir) - svo hann þorði ekki annað en að yfirgefa landið til þess að eiga það ekki á hættu að verða sendur úr landi með þeim skilyrðum að mega aldrei koma aftur. Eins og ég segi man ég ekki nákvæmlega tímasetningar og annað sem væri nauðsynlegt að vita til að bera málið rétt fram, en þetta var útkoman. Þessi aðili á stærstan hluta sinnar fjölskyldu búandi á Íslandi.
Framkoma þeirra sem þurfti að tala við einkenndist af virðingarleysi þó forstjórinn (framkvæmdastjórinn?) hafi þó allavega verið kurteis þegar hann benti á að málið væri í höndum afgreiðslustúlkunnar í anddyrinu (sem var um tvítugt og virtist ekki gædd mikilli röklegri skynsemi).
Fjölmenningarstofa (man ekki hvort það heitir þessu nafni, þessi skrifstofa þarna á Hverfisgötunni) sagði að í svona málum væri voða lítið hægt að gera; svona væri þetta bara, því miður.

Mér þætti sniðugt að blaðamaður fylgdi þessu ferli eftir; fyndi aðila sem þyrfti að sækja um dvalarleyfi og fyldist með ferlinu frá A til Ö. Það er erfiðara að muna allt rétt eftir á.

gerður rósa gunnarsdóttir, 20.10.2007 kl. 13:29

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband