Snjór að kveldi


Snjór að kveldi
tekur hvert hljóð götunnar í sig
Bæjarlíf hverfur í silfurjörð,
djúp kyrrð er eftir

Taki ég snjó með lófum mínum,
hljómar hlýja heimilis í eyrum?
 

Ég er eins og björn sem sefur á vetrin. Bara latur og latur og latur...ekki einu sinni að nenna að skrifa í bloggi mitt... á meðan að snjór þekjur bæinn.
Ég er að bíða eftir vor sem er komið nálægt nú þegar.
Ég vil fá snjó aðeins tvísvar eða þrisvar í ár og alls ekki sjá hann lengri en þrjá daga að sinni...

Eftir fjórða dag hverfur rómantísk hugmynd mín um snjó í burtu.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Hæ hæ, þessi vetur er líka búinn að vera leiðinlegur.  Miklar rigningar og svo mikill kuldi, en þá verður bara enn skemmtilegara að fá vorið með birtu allan sólarhringinn.  Hlakka líka til.

Ester Sveinbjarnardóttir, 9.2.2008 kl. 00:37

2 Smámynd: Sigga

Ohh, ég verð líka voðalega löt í svona tíðarfari. Hlakka mikið til sumarsins, litanna og birtunnar.

Sigga, 9.2.2008 kl. 10:33

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Fallegt ljóð um snjóinn. Þetta veður setur fólk í patt stöðu  - sem bíður vel upp á leti.

Edda Agnarsdóttir, 9.2.2008 kl. 11:20

4 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Þegar ég horfi á hundana mína og kettina í svona roki og leiðindaveðri, þá sé ég að það er eðli okkar allra að sofa bara og vera löt á meðan lægðirnar ganga yfir. Verst með svona vetur eins og núna sem hefur boðið okkur upp á 2 - 3 lægðir í hverri viku....! Maður hefur "neyðst" til að vera "latur" síðan í ágúst!

Vonandi að vori snemma í ár,

Fallegt ljóðið um snjóinn

Ragnhildur Jónsdóttir, 10.2.2008 kl. 01:26

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband