24.2.2009 | 21:05
„Fangaskipti" í kreppunni
Þessar fréttir virðast að gleðja geðþótta nokkurs fólks sem finnst gaman að vera hart í garð útlendinga á Íslandi. Sjáið, Bandaríkjamenn gera sama til Íslendinga.
En er það málið? Bandaríkin eru alls ekki dream land eins og við vitum alveg nóg ( þó að ég sé frekar hrifinn af Bandaríkjunum og fólk þarna sjálfur. En það er annað mál.) Það er ýmislegt sem er ótrúlegt (neikvætt) í Bandaríkjunum. Það má segja hið sama um Bretland, Þýskaland eða Japan. Réttlætist eitthvað í samfélaginu okkar með því að benda á vandræði í nokkurri þjóð og segja hann gerir þetta, hún gerir þetta ?
Í fréttunum tjáir Páll Þór vonbrigði þitt og reiði til aðstæðna í Bandaríkjunum. Eigum við að taka skilaboð hans sem afsökun til þess að Íslendingar gera sama til útlendinga hérlendis? Eða eigum við að taka þau sem ábendingu á eitthvað sem ætti ekki að eiga sér stað hvar það sem er?
Ég vil ekki halda í dómsgreind minni á ábendingu eins og UK gerir þetta eða USA gerir hitt. Ég vil byggja dómsgreind mína á mannréttindi, virðileik manna og kærleik, þar sem þau eru leiðarljós fyrir okkur sem skipta málum okkar.
Þeir gerðu þetta Þið gerðuð hitt leiðir okkur aðeins í ringulreið af óvirðungu og ávirðingu. Mig langar ekki að sjá Ísland gengur í þessa ringulreið. Mig langar að sjá Ísland gerir eitthvað betra og meira skapandi en í öðrum þjóðum, og kennir Bandaríkjunum um það.
Fangaskipti" í kreppunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook