Talar þú fallega um maka þinn eða barn?

Ég hef upplifað margs konar menningaráfall(culture shock) á Íslandi hingað til, eins og t.d. börn eða unglingar tala alveg á jafnfætis grundvelli við eldra fólk eða einstaklingur má halda fast fram eigin skoðun eða krefjast mikils fyrir sjálfan sig á móti öðrum í hóp þar sem hann tilheyrir sjálfur.

Slíkt menningaráfall snýst ekki endilega um hvor menningarheimur sé betri en hinn, en oftast varðar það þá staðreynd að menningarheimur er ekki eins. 

Nú er ég vanari íslenskri menningu en áður eftir tuttugu ára dvöl hérlendis. Meira að segja mæti  ég stundum menningaráfalli í öfugt gagnvart menningu hemalands míns, Japans. 

Ef ég má nefna sem dæmi slíkt, í Japan talar maður ekki fallega um fjölskyldumeðlima sinn yfirleitt.  T.d. talar eiginmaður vont um eiginkonu sína í almennafæri eða foreldrar lofa ekki barn sitt. Þetta þykir tjáning hógvæðar í Japan.

Aðgreining milli ,,mi-uchi"(insider) og ,,hito-sama"(outsider) er mjög sterk og hún hefur áhrif á framkomu Japana verulega, því getur ofangreint dæmi verið skiljanlegt ef framkoma í almannafæri er að ræða. En stundum á sama viðhorf eða framkoma sér stað jafnvel innan fjölskyldu.

Þetta gæti verið búið að breytast núna, en a.m.k. var það svona þegar ég var ungur. Ég man ekki sjálfur hvenær pabbi minn hafði lofað mig í síðasta skipti. Hið sama má segja um mömmu mína.

Einu sinni reyndi ég að sannfæra foreldra mína að ég var duglegur og virkur í íslensku samfélagi með því að sýna þeim dagblöð eða tímarit þar sem umfjöllun um mig sást. En mamma mín leit á þau bara pínulitið og sagði: ,,Og svo..?"

Viðhorf af þessu tagi þýddi alls ekki að pabbi minn og mamma höfðu litla ást til mín, en ,,tjáningarháttur" þeirra var orðinn talvert öðruvísi en hátturinn sem ég hafði venist hér á Íslandi.

Nú skil ég alls ekki þetta tiltekna atriði í japanskri menningu, eða ég get alls ekki verið sáttur við það. Það er jú mikilvægt og nauðsynlegt fyrir mann að fá gott orð eða hrós stundum, eftir tækifæri, frá eigin manninum eða konunni, og einnig fyrir börn frá foreldrum sínum.

Þetta er eðlilegri framkoma og mun hafa betri áhrif á samskipti meðal fjölskyldu. Og að sjálfsögðu reyni ég að halda í samskiptum við börnin mín á þennan hátt eins og flestir Íslendingar gera.  

Þrátt fyrir það að ég hafi haft alltaf gott samband við pabba minn og mömmu, vil ég gjarnan fullyrða að samband milli mín og barnanna minna er mikið betra samt.

Þannig trúi ég því að ,,menningaráfall" er ekki neikvætt í eðli sínu og getur verið tækifæri til að opna leið fyrir víðari heim fyrir okkur. A.m.k. finnst mér það vera betra að fylgja menningu- hvort sem hún sé menning frá heimalandi sínu eða menning nýs lands- sem ég get verið sáttur við sjálfur.    

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband