Styrkjum Ljóð.is!!


Kæru bloggvinir og ljóðaelskufólk.

Brátt hverf ég aftur frá landinu um stundarsakir.
Crying

Ég vil tilkynna ykkur það að ef þið viljið eignast ljóðabók mína, „Fimmta árstíðin“, þá er hægt að panta eintak hjá ljóðakennara mínum og vini, Davíð A. Stefánssyni (david@ljod.is).

Verðið er 2.000 kr. með sendingargjaldi. Tekjur úr sölunni verða til styrktar vefsíðunni ljóð.is.

Davíð Stefánsson er skáld sjálfur og hefur stýrt ljóð.is(www.ljod.is) frá upphafi á árinu 2001. Einnig sinnir hann miklu verkefni í skálda- og útgáfufélaginu Nykri (www.nykur.is), sem er jafnframt útgefandi bókarinnar minnar.

Ég hef notað hingað til ljóð.is mjög mikið með því að skoða ljóðagerðir annarra eða með því að senda inn mín eigin ljóð. Vefsíðan gefur mér ávallt ferskt loft úr skáldaheiminum og einnig tækifæri til að kynnast mörgu góðu ljóðaelsku fólki.

Ég vil að sem flest ykkar hafið áhuga á „Fimmtu árstíðinni“ – en ef ekki, langar mig til að hvetja ykkur að heimsækja ljóð.is.

Það væri gaman!!
Joyful

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ár!! Wizard


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Minn kæri, ég vil gjarnan kaupa bókina þína, og ég vil gjarnan fá hana áritaða, gott væri ef þú sendir mér hana í póstkröfu. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2007 kl. 20:11

2 Smámynd: Toshiki Toma

Kæra Ásthildur, þakka þér fyrir.
En þá vinsamlegast sendu mér e-mail með heimilsfangið þitt til toshiki@toma.is.
Ég verð fjarverandi og bið þig um að gera það sem allra fyrs!!

Toshiki Toma, 17.12.2007 kl. 20:44

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Davíð hringdi í mig áðan og við gengum frá þessu.  Takk og farðu vel með þig og góða skemmtun. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2007 kl. 21:48

4 Smámynd: Júlíus Valsson

Innilega til hamingju með nýju ljóðabókina!
Það er mikið afrek að skrifa bók á öðru tungumáli en móðurmálinu. Ég bíð spenntur etftir að lesa hana.

Júlíus Valsson, 18.12.2007 kl. 01:21

5 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Ég fékk bækurnar í gær og er byrjuð að lesa. Þær eru mjög fallegar, og takk fyrir fallegu áritunina.

Góða ferð, gangi þér vel og  komdu heill aftur.

Gleðileg jól og  farsælt nýtt ár!

Greta Björg Úlfsdóttir, 18.12.2007 kl. 06:19

6 Smámynd: Toshiki Toma

Kærar þakkir, elsku vinir!
Frá og með í dag (18.), vinsamlegast sendu tölvupóst til info@ljod.is ef þú vilt panta bókina, þar sem ég get ekki sinnt sendingu lengur.
Takk!!

Toshiki Toma, 18.12.2007 kl. 12:18

7 Smámynd: Úlfar Þór Birgisson Aspar

Ég fékk mína bók í dag,og mun slaka á í vikunni og lesa eitt kveld ljóðin þín og takk fyrir mig Toshiki,megir þú eiga góð og gleðileg jól á Japanseyjum kveðja Úlli.

Úlfar Þór Birgisson Aspar, 18.12.2007 kl. 18:08

8 identicon

Ég var að panta eintak

Jakob (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 22:42

9 identicon

Kæri Toshiki.Kærar þakkir fyrir bókina, gat ekki beðið jólanna að lesa hana og finnst hún mjög falleg.  Eins og er er ég hrifnust af ljóðinu "Lind á himninum".Óska þér og fjölskyldu þinni Gleðilegra jóla og alls hins besta.

Ásta.

Ásta Einarsdóttir (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 23:23

10 identicon

Sæll aftur Toshiki. Ég er komin með bókina þína en enga leið til að borga? Er ekki eitthvað reikningsnúmer eða eitthvað sem að ég get lagt inn á? Vill ganga frá þessu sem fyrst. Vill ekki verða þekktur fyrir vanskil :S

Jakob (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 20:51

11 Smámynd: Toshiki Toma

Hi,Jakob. I will see to it soon. (Sorry, cannot use Icelandic now here). Anyway nobody would think you are vanskilmadutr :-)

Toshiki Toma, 21.12.2007 kl. 06:58

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband