"Í hjarta mínu"


Í hjarta mínu
er eitt hólf autt
þar sem ég hljóðlega finn
allt sem orð ná ekki yfir
né hlutir að forma

líkt og bil milli ljóðlína
eða tómrúm í japönsku málverki

Ég varðveiti það
ávallt
mitt dýrmæta hjartahólf



- “Í hjarta mínu”, Eftir Tomihiro Hoshino,
   einkaþýðing úr frumtexta á japönsku af Bryndísi Möllu Elídóttur og TT-


Mig langar til að kynna eitt ljóð Tomihiro Hoshino, ljóðaskáld og málara, fyrir ykkur einu sinni enn.

Tomihiro Hoshino er Japani og nú er hann 68 ára gamall. Hann er vel þekktur í Japan og er búinn að gefa út margar ljóðabækur með fallegar myndir (eða myndabækur með falleg ljóð) síðan 1965. Sumar bækur eru þýddar á ensku.

Það er hægt að skoða myndir eftir Tomihiro Hoshino á vefsíðu:
http://www.hoshinotomihirousa.org

Hann er undarlegur maður að vissu leyti, en ef þú vilt vita um það, vinsamlegast heimsóttu ofangreinda vefsíðu.
FootinMouth

Ég er enginn umboðsmaður hans og ekki einu sinni með leyfi frá honum til að þýða ljóð eða birta á vefsiðu. Þess vegna getur þetta verið höfundarréttandabrot,
Bandit en þetta er ekki heldur fyrir viðskipti.Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Toshiki minn þetta ljóð er svo fullt að vísdómi og sannleika, að það heillar mann algjörlega, það ER bara, en þannig er sumt, það bara ER upplifun þess sem les.  Takk fyrir þetta.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.12.2007 kl. 16:10

2 Smámynd: Toshiki Toma

Sæl, Ásthildur.
Takk fyrir kveðjuna þína. Endilega kíktu í http://www.hoshinotomihirousa.org !! 
Hann er einstakur!   

Toshiki Toma, 16.12.2007 kl. 19:52

3 Smámynd: Hróðmar Vésteinn

NIPPON POWER

NIPPON POWER

NIPPON POWER

NIPPON POWER

NIPPON POWER 

Hróðmar Vésteinn, 16.12.2007 kl. 20:22

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir það Toshiki

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.12.2007 kl. 21:38

5 Smámynd: Jón Sigurgeirsson

Falleg lýsing á tilfinningum. Þakka fyrir

Jón Sigurgeirsson , 17.12.2007 kl. 00:45

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband