Hinn alþjóðlegi mannréttindadagur 10. des.

10. desember kl. 20.00 í Amnesty-salnum, Þingholtsstræti 27, 3. hæð

Allir eru bornir frjálsir og jafnir öðrum að virðingu og réttindum; 1. gr. Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna.


Í tilefni hins alþjóðlega mannréttindadags 10. desember og 16 daga átaks gegn kynbundu ofbeldi efna Amnesty International og
Mannréttindaskrifstofa Íslands til sameiginlegrar dagskrár í Amnesty-salnum, Þingholtsstræti 27, 3. hæð, kl. 20:00.
 
Bann við mismun er hornsteinn hins alþjóðlega mannréttindakerfis sem á upphaf sitt í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var á allsherjarþingi samtakanna hinn 10. desember 1948.
 
I tilefni dagsins  verða sýndar tvær nýjar íslenskar heimildamyndir sem fjalla um mannréttindi frá ólíkum sjónarhornum og tónlistarmaðurinn Svavar Knútur flytur nokkur lög.
 
Sýndar verða myndirnar:
Taktu þátt eftir Sörku Wohlmuthovu, sem beinir sjónum að reynsluheimi ungra kvenna af erlendum uppruna á Íslandi og Athvarfið eftir Kristínu Tómasdóttur og Garðar Stefánsson, heimilda-/og kynningarmynd um Kvennaathvarfið.
 
Dagskráin hefst kl. 20.00, aðstandendur myndanna munu sitja fyrir svörum.
 
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. 

 

- úr fréttatilkynningu - 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband