Barátta hennar Allesíu


1.
Fyrir um 68 árum, í kringum árið 1940, komu þýskir hermenn til smábæjar í Rúmeníu. Þar bjuggu meðal annarra nokkrar fjölskyldur Gyðinga. Gyðingarnir voru hræddir við þýsku hermennina og forðuðust að fara út á götu.
Í einni af þessum fjölskyldum var 12 ára stelpa. Hún sagði við foreldra sína: ,,Pabbi, mamma, ég er svöng“. En það var ekkert til að borða á hennar heimili frekar en öðrum í bænum. Stelpan spurði: ,,En af hverju förum við ekki til Þjóðverjanna og biðjum um mat? Þeir eru að borða!“ Pabbi hennar sagði:,,Ertu brjáluð? Þeir skjóta þig!“

En stelpan fór út engu að síður, ef til vill skildi hún ekki vel hvers konar áhættu hún var í raun og veru að taka, og hún fór til eins foringja hermannanna. ,,Herra, ég er svöng! “ Foringinn horfði á hana, hló en benti svo á borð þar sem á lágu diskar og bollar með matarleifum hermannanna. Stelpan gekk að borðinu, tók saman afganginn af matnum og fór með heim.
Næstu daga endurtók stelpan leikinn. Hún gerði smáviðvik fyrir hermennina og fékk í staðinn að borða. Hún tók einnig mat fyrir fjölskylduna sína. Þjóðverjarnir vissu af því en stoppuðu hana ekki.

En síðan runnu upp enn harðari tímar. Þjóðverjarnir fluttu sig smám saman yfir í annan bæ og samtímis byrjuðu þeir að undirbúa flutning Gyðinga í sérstakar búðir. Enginn sagði það upphátt eða beinlínis en fólk gat sér til um hvað væri að gerast. Stelpan fór til foringjans og spurði: ,,Ætlarðu að drepa pabba minn?“ Hann staraði á stelpuna en hunsaði hana. ,, Ætlarðu að drepa pabba minn!?“ spurði hún aftur. Foringinn leit út fyrir að vera hissa á þrákelkni stelpunnar og ruglaður. En hún gafst upp ekki. ,, Ætlarðu að drepa pabba minn? Skjóttu mig þá fyrst! “ Þá tók foringinn báðum höndum um hattinn sinn og sagði lágt, ekki við stelpuna heldur sjálfan sig: ,, Guð, mér var kennt að Gyðingar væru allir huglausir eins og grísir...“.
Hermennirnir fluttu í annan bæ, en þeir tóku engan Gyðing með sér.

Stelpan lifði af stríðið og varð síðar móðir. Kommúnistar tóku við stjórn Rúmeníu og þar voru börnin frædd og kennt allflest um stríðsglæpi Þjóðverja. Það var eingöngu rætt um allar ljótu sögurnar og neikvæðu um Þjóðverja. En stelpan, sem nú var móðir nokkurra barna, talaði aldrei illa um Þjóðverja. Hún vildi bera vitni um það að á meðal Þjóðverja voru einstaklingar sem hefðu gert góðverk í ljótu og hörmulegu stríði en stjórnin vildi aðeins halda á lofti hinu neikvæða.

Stelpan er í dag 77 ára og býr enn í Rúmeníu. Ég heyrði þessa sögu fyrst, fyrir fjórum árum, þegar ég var á leið í lest á milli Brussel og Amsterdam. Það var sonur konunnar sem sagði mér söguna, en hann er prestur rétttrúnaðarkirkju í Tékklandi og starfar mikið fyrir flóttamenn þar.

2.
Ég er búinn að segja ykkur smásögu sem ég heyrði sjálfur. Ég veit ekki hvort þessi saga sé 100 prósent sönn eða hvort hún sé kannski ofurlítið færð í stílinn. En hvort sem er, þá finnst mér sagan vera mjög góð því hún vekur okkur til umhugsunar um svo margt. Sagan felur í sér nokkur atriði sem ég tel nauðsynlegt og mikilvægt að hafa í huga en hver eru þessi atriði?

Í fyrsta lagi; mannréttindamál eru ekki bara abstrakt hugmyndarfræði, heldur áþreifanleg mál og geta verið mjög persónuleg. Stelpan í smásögunni, sem ég hef kosið að nefna Allesíu-don´t ask me why-, var svöng. Allesía fór til herforingja og bað um mat, ekki til þess að ræða alþjóðleg stjórnmál eða heimspeki. Mannréttindamál eru jú hugmyndarfræðileg og almenn, en jafnframt eru þau hlutstæð og persónuleg. Mannréttindi verða ekki aðskilin frá raunverulegum kröfum okkar og þörfum.
Stundum gleymum við því. Réttindi verða fyrst og síðast að raunverulegum réttindum þegar þegnar heimsins fá raunverulega að njóta þeirra. Þau byggja á ákveðnum sammannlegum grundvallarþörfum sem við manneskjurnar þurfum til þess að vaxa, dafna og þroskast. Þetta er grundvallaratriði í mannréttindamálum – yfirlýsingar eða lög sem í raun og veru eru ekki í eða virka ekki í framkvæmd og eru þar með marklaus teljast ekki til réttinda.

Í öðru lagi; Allesía sagði foringjanum að hana vantaði mat. Í sérhverjum aðstæðum verðum við að vera meðvituð um mannréttindi okkar og krefjast þeirra, sérstaklega í lýðræðiskerfinu þar sem málfrelsi er tryggt. Manneskja verður að vera vakin yfir sameiginlegum mannréttindum og má aldrei sofna á verðinum. Þetta er önnur grunnregla.
Að standa upp og gera kröfur til mannréttinda sinna er oftast mjög þreytandi ferli. Samt er staðreyndin sú, að mannréttindin koma ekki sjálfkrafa til okkar og sagan hefur sýnt að ef við gætum þeirra ekki þá er hægt að taka þau frá okkur.

Í þriðja lagi; það getur verið áhættusamt að krefjast mannréttinda sinna í ákveðnum aðstæðum eins og þegar Allesía stóð frammi fyrir byssukjafti hermannsins. Til allrar hamingju þurfum við ekki að óttast byssur á Íslandi en við getum hins vegar ekki horft fram hjá annars konar áhættu eins og að lenda í einelti, að verða fyrir samfélagslegri einangrun, mæta andúð og svo framvegis ef við tölum hátt um réttindi okkar eða krefjumst þeirra.

Í fjórða lagi; Allesía stóð andspænis herforingja, en ekki hverjum sem er í litla bænum sínum, sem sagt hún krafðist þess af manni í valdastöðu að gefa sér mat. Þegar barist er fyrir mannréttindum er nauðsynlegt að fylgjast sífellt með því hvar valdið liggur. Þetta atriði er kannski ekki alveg vel þekkt. Þegar við ræðum t.d. um fordóma og mismunun gagnvart útlendingum á Íslandi, heyrast raddir eins og :
,, það eru líka til fordómar og mismunun á meðal útlendinga.“ Það er alveg satt og sem prestur ætla ég ekki að segja útlendingar megi halda í fordóma til annarra útlendinga. En hvað mannréttindaumræður varða, þá skiptir það ekki miklu máli, reyndar, hvort það séu fordómar til á meðal útlendinga eða ekki, af því að þeir útlendingar, hverjir þeir sem eru, hafa ekkert vald í samfélaginu. Þeir eru minnihlutahópur(ath: þó að minnihlutahópur geti verið með vald stundum).
Að þessu leyti eigum við að viðurkenna þann mun sem er á milli mannréttindaumræðunnar og siðferðisumræðunnar. Mannréttindamál snúast um, í fáum orðum, um hvernig menn nota vald til að stjórna. Þess vegna eru mannréttindamál alltaf tengd ákveðnum tíma, stað og hagsmunaaðila eða aðilum. Umræðurnar eiga því að taka mið af valdinu og valdhöfum, það er eitt af leiðarljósunum sem geta beint henni í réttan farveg.

Í fimmta lagi; við skulum vera reiðbúinn að skoða og viðurkenna fordóma okkar sjálfra eða vanþekkingu. 99 prósent af þeirri þekkingu sem við höfum við sennilega numið af öðrum mönnum, bókum og í skólum. Það er alltaf möguleiki fyrir hendi, að við byggjum framkomu okkar eða málflutning á röngum forsendum, eins og foringinn í sögu Allesíu. Honum var kennt að allir Gyðingar væru huglausir. Mannkynssagan sýnir okkur að valdhafar, hvenær sem er og hvar sem er, hafa tilhneigingu til að nota menntakerfi samfélagsins til þess að réttlæta ákveðna fordóma og óréttlæti. Líklegast er hvert og eitt okkar hér líka undir áhrifum frá umhverfi okkar. Við eigum að vera vakandi fyrir því.

Í sjötta lagi; Allesía vann sitt litla stríð án ofbeldis. Að sjálfsögðu hafði hún ekki annað val en berjast án ofbeldis, en hefði hún haft möguleika á því og kosið frekar að ráðast á hermanninn með vopni, hefði niðurstaðan þá verið sú sama? Ég held það ekki. John Kenneth Garbleith er vel þekktur hagfræðingur í Bandaríkjunum og demókrati, en hann sagði um ábyrgð Bandaríkjanna á Víetnam-stríðinu: ,, Stríð er alltaf auðvelt að byrja, en ansi erfitt að klára.“ Mér sýnast orð hans vera sígild þegar ég sé hvernig aðstæður eru núna í Írak og Afganistan. Friðarmál er reyndar samofin mannréttindamálum, þar sem ofbeldi brýtur á mannréttindum og treður á mannlífi.

Síðast en ekki síst ; Þegar Allesía varð fullorðin og móðir, kaus hún að segja frá lífsreynslu sinni, ekki aðeins öllu því hræðilega sem fylgdi hernámi Þjóðverja eins og öll rúmenska þjóðin upplifði heldur líka ljósinu í myrkrinum, hermönnunum sem hjálpuðu henni og fjölskyldu hennar. Hún vildi segja frá því að sumir þeirra höfðu líka mannlegar hliðar og að stundum þyrfti maður líka að fyrirgefa til þess að geta haldið áfram og byggt upp. Nú hugsar Allesía um börnin sín og einnig um aðra í samfélagi sínu. Þaðan breiðist ábyrgðarkennd Allesíu út til samfélagsins.

Ég sagði áðan að mannréttindamál eru persónuleg, en ég á ekki við að mannréttindamál eru einkamál mín eða þín. Ef manneskja hugsar vel um sjálfa sig, þá hugsar hún um börn sín og samfélagið sem þau búa í. Manneskja hugsar til nágranna sinna í bænum og í heiminum, aðstæðna þeirra og framtíðar komandi kynslóðar. Dag eftir dag er allt sem gerist á jörðinni tengt við mitt líf og þitt líf. Við getum ekki flúið jörðina.

3.
Það eru mörg umræðuefni í samfélagi okkar, varðandi mannréttindi og friðarmál, eins og mál samkynhneigðra, geðsjúklinga og útlendinga, heimilisofbeldi, fjölmiðlamál, launamun kynjanna, mál Mannréttindaskrifstofu Íslands og stríðið í Írak.
Tilefnin er því ærin og þið hafið mörg tækifæri til þess að sanna ykkur sem framtíðar Gandhi, Ikeda eða M.L. King í samfélaginu. Ekki hika við að grípa tækifærið. Lífið er ykkar – núna - í okkar samfélagi – fyrir alla. Mannréttindamál eru áþreifanleg og persónuleg.


- úr ræðu í ráðstefnu sem var haldin af Soka Búddistafélagi -



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Kristjánsson

Takk fyrir. kv. B

Baldur Kristjánsson, 12.2.2008 kl. 15:04

2 Smámynd: halkatla

falleg saga, heillandi pistill

halkatla, 12.2.2008 kl. 15:08

3 Smámynd: Toshiki Toma

Takk, kæru vinir, séra Baldur og Anna.

Er það hægt að losa við NOVA á einhvern hátt?? 
Mér finnst það vera í lagi að setja auglýsingu en hún ætti ekki að trfula lestur.  

Toshiki Toma, 12.2.2008 kl. 15:15

4 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Takk fyrir þetta

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 12.2.2008 kl. 15:19

5 Smámynd: Pétur Björgvin

Sæll Toshiki. Þú spyrð um leið til að losna við auglýsinguna. Þorsteinn Ingimarsson hefur bent á leið til þess að losna við auglýsingar þegar þú ert að skoða vefsíður. Því miður er hins vegar engin leið fyrir þig sem blog(g)ara að taka auglýsinguna út þannig að enginn sjái hana. Hver og einn þarf að stilla vafrann sinn að því er ég best veit.

Takk fyrir umhugsunarverða hugleiðingu.

Pétur Björgvin, 12.2.2008 kl. 17:01

6 Smámynd: Toshiki Toma

Takk kærlega, Nanna.

Og takk fyrir upplýsingarnar, Pétur. Ég skla skoða færslu hans Þorsteins. 

Toshiki Toma, 12.2.2008 kl. 17:32

7 identicon

Takk kærlega fyrir pistilinn Toshiki

Margrét (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 18:56

8 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Góður pistill, Toshiki.  Umhugsunarverður. Takk fyrir.

Sigríður Sigurðardóttir, 12.2.2008 kl. 19:36

9 Smámynd: Paul Nikolov

Rétt hjá þér, Pétur. Ég vissi ekki einu sinni hvað þessi NOVA auglýsingar var af því ég nota AdBlockPlus í Firefox.

Æðislegur pistill hjá þér Toshiki. Veit ekki hvernig þú finnur tímann til þess að skrifa svo mikið og vel.

Paul Nikolov, 13.2.2008 kl. 11:35

10 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Takk fyrir þetta, Toshiki.

"Mannréttindamál eru áþreifanleg og persónuleg."

Til dæmis mannréttindamál lítillar stúlku á Filippseyjum.

Greta Björg Úlfsdóttir, 13.2.2008 kl. 19:02

11 Smámynd: Júdas

Góður pistill Toshiki og dregur mann út í vangaveltur.

Júdas, 13.2.2008 kl. 23:45

12 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Toshiki, þú segir í pistlinum þínum:

" Dag eftir dag er allt sem gerist á jörðinni tengt við mitt líf og þitt líf. Við getum ekki flúið jörðina. "

Þetta er vel orðað hjá þér. Sr. Martin Luther King orðaði þetta frábærlega vel á sínum tíma, þannig:

"Injustice anywhere is a threat to justice everywhere. We are caught in an inescapable network of mutuality, tied in a single garment of destiny. Whatever affects one directly, affects all indirectly."

Greta Björg Úlfsdóttir, 14.2.2008 kl. 14:14

13 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

...orðaði þetta LÍKA frábærlega vel, ætlaði ég að segja...

Greta Björg Úlfsdóttir, 14.2.2008 kl. 14:16

14 Smámynd: Toshiki Toma

Kæru vinir, takk fyrir kveðjurnar.

Gteta: takk fyrir þetta. Já, ég veit að Rev. King sagði það. Ég notaði þetta orð í skrifum 
mínum fyrir nokkrum árum
http://www.toma.is/grein/grein.sjalfsmynd%20iselndinga.htm

Toshiki Toma, 14.2.2008 kl. 15:57

15 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll Toshiki,  góð saga. En eins og þú segir gæti hún verið færð örlítið í stílinn.

Það voru reyndar Rússar sem réðu öllu í Rúmeníu frá júní 1940 til júní 1941. Þeir skertu líka réttindi gyðinga, og það höfðu Rúmenar gert 1938-39, mest allra ríkja utan Þýskalands.

Mér finnst ekki rétt að heimfæra hvaða hörmung í heiminum sem er upp þjóðarmorðið sem framið var á gyðingum á 5. tug síðustu aldar. Réttindi pólskra farandverkamann á Íslandi eiga d.t. ekkert skylt við helförina. Kvótinn og afleiðing hans á ekkert skylt við helförina, þótt að einhver sjóari á Vestfjörðum skrifi það á bloggi sínu. Sjálfskaparvíti þeirra sem kusu Hamas yfir sig a Gaza á ekkert skylt við gettóið í Varsjá eða hræðurnar þar, sem árið 1943 börðust nánast án vopna til síðasta manns við stormsveitir nasista

Það er ekki hægt að analógísera allt í heiminum.

Það er hins vegar gott, ef menn geta lært eða bætt sig með því að hugsa til örlaga  hinna 6 milljón gyðinga sem þurfti að fórna til að t.d. Íslendingar hafi það gott í dag. En var það þess virði?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 14.2.2008 kl. 18:02

16 Smámynd: Toshiki Toma

Sæll, Vilhjálmur og takk fyrir sagnfræðilegu ábendinguna þína.
Þetta er saga sem konan sagði syni sínum og sonurinn sagði mér, því það hlýtur 
að vera ruglun eða misminning. Samt trúi ég að eitthvað eins og sagan gerðist í raun.
  

Toshiki Toma, 16.2.2008 kl. 12:58

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband