Innflytjendur og íslensk tunga

Þegar rætt er um málefni innflytjenda á Íslandi er mikilvægi íslenskunnar jafnan ofarlega á blaði. Tungumálið er grundvallarverkfæri fyrir samskipti yfirleitt og auk þess er íslenskan kjarni íslenskrar menningar og hefðar. Það er því skiljanlegt að áhersla er lögð á mikilvægi þess að innflytjendur læra íslenskuna fljótt og vel.

Til þess er það afar nauðsynlegt, að þegar mörkuð er stefna í málefnum innflytjenda á Íslandi, að það ríki skilningur á mikilvægi þess að við innflytjendur fáum tækifæri til náms í íslensku og einnig að við notum það tækifæri. Slíkt er eftirsóknarverð stefna.

Hins vegar er það líka mikilvægt að horfa á raunverulega stöðu innflytjenda í samfélaginu. Hver sem rökin eru fyrir mikilvægi íslensku fyrir innflytjendur, þá snýr þetta alltaf að þeim sjálfum og það eru á endanum alltaf einhverjir sem ekki geta lært íslenskuna nógu vel af einhverri ástæðu. Viðkomandi getur verið orðinn mjög fullorðinn og átt erfitt með að læra nýtt tungumál, einstæð móðir með lítil börn, haft einhvern námserfiðleika, unnið langan vinnudag osfrv.

Og hvernig er þá litið á þá ef ekki er tekið tillit til ólíkra einstaklinga, heldur aðeins horft á málefnið út frá þeirri kröfu að allir verði að kunna íslensku? Mér sýnist það sé dulin tilhneiging enn til staðar í samfélaginu að álíta innflytjanda sem kann ekki íslensku eins og hann sé ekki„ góður innflytjandi" eða jafnvel„ samfélagslegt álag".

Það er ekki gott ef innflytjandi sem vill ekki læra íslensku, þó að hann hafi til þess alla möguleika, kvartar síðan yfir samskiptaerfiðleikum í landinu. En sú staðreynd að innflytjandi getur ekki talað íslenskuna þýðir alls ekki sjálfkrafa að hann nenni ekki að læra hana. Auk þess er raunin sú að margir innflytjendur sem ekki kunna íslensku vel, leggja þó mikið af mörkum inn í íslenskt samfélag.

Ef ég skoða aðeins í kringum mig þá starfa margir sem leiðsögumenn og taka á móti hundruðum ferðamönnum frá heimalandi sínu, aðrir starfa sem tungumálskennarar í skólum og margir Íslendingar njóta þjónustu þeirra. Einnig er oft bent á það, í umræðunni um vinnumarkaðinn almennt, að innflytjendur sinna þar störfum sem Íslendingar kæra sig ekki um.

Þannig er það mikil þröngsýni að telja einhvern vera„ samfélagslegt álag" ef viðmiðið er aðeins kunnátta viðkomandi á íslenskunni. Þó að það séu meiri líkur á samskiptaerfiðleikum ef maður skilur ekki íslenskuna, þá getur maður samt sem áður auðgað samfélagið með margvíslegum hætti.

Ég er ekki að halda því fram að innflytjendur þurfi ekki að læra íslensku. Þvert á móti er ég fyllilega sammála því að leggja þurfi mikla áherslu á mikilvægi íslenskunnar fyrir alla innflytjendur. En samt má það ekki verða að viðmiði til að meta mannlegt og samfélagslegt virði manneskjunnar, hvort viðkomandi sé með nægilega þekkingu á íslensku eða ekki. Ég hef sagt þetta mörgum sinnum á undanförnum árum og ætla að halda áfram að endurtaka þetta, svo lengi sem umræðan verður um innflytjendur og íslenska tungu.

-Fyrst birt á Mbl. 10. maí- 



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Sæll Toshiki, ég segi það bara enn og aftur á ég dái þessa sem eru að bögglast við að læra íslenskuna og það kannski vegna þess að ég þurfti að bögglast við að læra 3 tungumál og það síðasta kominn á sextugsaldurinn. Er ég ennþá að endur læra íslenska stafsetningu og þá góða hjálp í "Púkanum" okkar hér á síðunni. En ég hef tekið eftir því að þeir sem kunna tungumálið í viðkomandi landi, vinna mun betur en þeir sem ekki kunna af þeirri einföldu ástæðu að þeir hafa ekki skilið hvaða verk þeir eiga að leysa af hendi. 

Eyjólfur Jónsson, 29.5.2012 kl. 21:02

2 identicon

Tek heilshugar undir með þér, eins og þú réttilega bendir á þá er stór hluti þessara útlendinga að vinna vinnu sem Íslendingar vilja ekki vinna og vinna jafnvel langan vinnudag.

Eftir langan vinnudag getur verið erfitt að koma sér í skóla og læra mjög svo framandi tungumál. Einnig er það líka til að margir útlendingar skilja mikið í íslenskunni en eiga erfitt með að tjá sig, finnst sem þeir hljómi eins og vanvitar og geta kanski ekki komið frá sér það sem þeir vilja segja almennilega. Ég hef sjálfur verið útlendingur í framandi landi og þekki aðeins hvernig það er að geta ekki komið því almennilega frá mér sem ég vildi segja viðkomandi á hans eigin tungumáli.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.5.2012 kl. 20:54

3 Smámynd: Toshiki Toma

Eyjólfur og Rafn, þakka ykkur fyrir góðu athugasemdirnar.

Mér finnst það mikið til stuðnings við okkur innflytjendur á Íslandi að heyra raddir íslensks fólks sem hefur reynslu af því að vera "útlendingar" í öðrum löndum.

Innflytjendamál eru ekki "svört-hvít" mál, heldur mál með "grá svæði" þar sem einhverjir þurfa að brúna á milli, held ég.

Toshiki Toma, 30.5.2012 kl. 22:31

4 Smámynd: Sæmundur G. Halldórsson

Mjög margir Íslendingar hafa búið um lengri eða skemmri tíma erlendis, ég gerði það t.d. í áratugi. Langflestir þeirra gera það sem þeir geta til að læra tungumálið í landinu og aðlagast. Svipað gildir sjálfsagt um flesta innflytjendur hér, en þó. Kannski gerðist breytingin of hratt. En staðreyndin er sú að mjög margir lifa hér eins og enska sé hið opinbera tungumál hér á landi, og ætlast til að allir skilji og tali ensku. Ég er ekki að sakast við starfsfólk eða einstaklinga, en atvinnurekendur bera ábyrgð. Mér finnst ekki eðlilegt að í fjölmörgum veitingastöðum og verslunum í Reykjavík skuli ekki vera hægt að fá þjónustu á íslensku. Ef einhver dirfist að tala íslensku á þessum stöðum bregst starfsfólk jafnvel við með fyrtni. Ég upplifði þetta í kvöld þar sem ég ákvað að tala eingöngu opinbert tungumál í landinu á veitingastað á Laugavegi. Af þremur starfsmönnum skildi enginn orð í íslensku. Er þetta í lagi?

Sæmundur G. Halldórsson , 4.6.2012 kl. 03:03

5 Smámynd: Toshiki Toma

Sæll, Samy.

Takk fyrir að deila upplifun þinni með mér.

Mér finnst það óþægilegt ef enginn af starfsmönnum skilur íslensku í veitingarstað í Reykjavík. En það er kannski, eins og þú segir, tillitisleysi vinnuveitenda eða eiganda veitingarhússins. Ef einn af þremur var manneskja sem talaði íslensku, veldur það ekki miklu veseni.

Toshiki Toma, 6.6.2012 kl. 15:31

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband