Að leita hælis


Ég er reglulega í sambandi við hælisleitendur hér á landi. Um 15-25 manns að meðaltali, sem leita hælis á Íslandi, búa í Reykjanesbæ. 15 – 25 menn er ekki mikill fjöldi manna, en fjöldi umsókna um hæli á Íslandi í fyrra var 38 samtals.

Að fá leyfi til þess að búa hér er ekki auðvelt. Umsókn um hæli fer í gegnum ítarlega rannsókn sem tekur langan tíma. Sumir af þeim hælisleitendum sem nú búa í Reykjanesbæ er þegar búið að bíða eftir viðbrögðum dómsmálayfirvaldanna í eitt til tvö ár. Fæstir hælisleitendanna eru með atvinnuleyfi og þurfa því að drepa tímann liðlangan daginn, alla daga.

Að sjálfsögðu er eftirsóknarvert og nauðsynlegt að hælisumsókn verði afgreidd án tafar og að umsækjendur fái sanngjarnan úrskurð. En í rauninni virðast vera þörf fyrir ýmsar úrbætur í aðstæðum hælisleitenda. Þær varða t.d. aðstæður þeirra á biðtíma (vinna, menntun, heilsugæsla, tilgangur hvers dags o.fl.), aðstæður gistiheimilis og samskipti milli umsækjenda og viðkomandi yfirvalda.

Tökum dæmi. Þótt reglugerðir kveði á um að hælisleitendur skuli fá staðfestingu skráningar hjá útlendingastofnun, þá virðist vera brotalöm á framkvæmdinni og fólkið er ekki með neitt skilríki sem sannar nafn þess og lagalega stöðu hérlendis. Fyrir einu og hálfu ári lenti einn hælisleitenda í bílslysi og þar sem hann var ekki með skilríki urðu nokkur vandræði. Var Útlendingastofnun þá bent á þessi vandkvæði en samt hafa engar úrbætur orðið. Svarið er alltaf “málið er í vinnslu”. Málið er raunar í glatkistu.

Hver er ástæða þess? Nú ætla ég að vera diplómatískur og vil ekki saka neinn af viðkomandi aðilum fyrir eitthvað eins og vanrækslu í málinu, tillitsleysi eða skort á einlægni. Það er ekki atriði sem ég er í huga mínum.

Mér sýnist ástæðan sem veldur “glatkistu-einkennamynstrinu” vera sú staðreynd að málefni hælisleitenda er geymd í skugga samfélagsins og falin fyrir augum almennings. Auk þess eru tækifæri almennings til að kynnast málum hælisleitenda oft umfjöllun í dagblaði í hneykslunarstíl og slíkt er ekki bara skaðlegt fyrir málefnið, heldur ýtir því lengra inn í skuggann.

Þannig eru hælismál sett neðar en önnur “þrýstings” mál og tapa forgangi sínum. Mér finnst
það afar nauðsynlegt og sanngjarnt að almenningur fái að þekkja hælismálin og axla ábyrgð sína. Hælisleitendur eiga engan þrýstingahóp á baki, því verður almenningurinn að taka við því hlutverki.

Í þessu samhengi er ég með tillögu. Hún er að ég vil hvetja alla alþingismenn að fara í heimsókn til hælisleitenda í Reykjanesbæ og hitta fólkið og hlusta á það. Sérstaklega vil ég hvetja þingmennina að kynnast málum hælisleitenda beint í staðinn fyrir að fá upplýsingar gegnum þriðja aðila.
Íslenska ríkið er aðili að alþjóðalegu samkomulagi um réttindi flóttamanna og hælisleitenda og
mér finnst ekki svo slæmt að eyða nokkrum klukkustundum í að skoða hvernig samkomulagið birtist sem raunveruleiki hér á landinu.

Í dag, 20. júní er alþjóðadagur flóttamanna. Ég óska að sem flestir þingmenn velti þessari tillögu fyrir sér í tilefni dagsins.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott innlegg og sennilega alveg rétt hjá þér með "glatkistu einkennamynstrið", vonandi að það skapist einhver umræða um þessi mál á næstunni.

Friðrik (IP-tala skráð) 20.6.2007 kl. 14:40

2 Smámynd: Gúrúinn

Ég vil heldur hafa "þetta lið" hér heldur fólk eins og þig, Ingó.

Það er gott að vita að hælisleitendur hafa  mann eins og þig til að sinna þeirra málstað, Toshiki. Ég vona að tillaga þín nái til sem flestra alþingismanna og að þeir taki mark á henni og kíki í heimsókn í Reykjanesbæinn.

Gúrúinn, 20.6.2007 kl. 19:00

3 Smámynd: www.zordis.com

Zad getur tekid á ad vera erlendur í zví landi er vid veljum okkur eda erum naudbeygd ad búa á!  Vona ad baráttan gangi vel og ad einbeittur hugur zinn verdi zér gjöfull!

www.zordis.com, 20.6.2007 kl. 20:29

4 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Ingó!!! svakalega ertu dónalegur.  Hvaða rétt hefur þú til að kalla annað fólk nöfnum? Hvað gerir þig betri? Mundu að það sem kemur fyrir aðra getur líka komið fyrir þig.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 20.6.2007 kl. 22:10

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband