Jeg lærer dansk med Forbrydelsen!


Ég hlakka til þess!!Wizard

Þrátt fyrir að ég hefði heyrt oft góða orðaróminn um Forbrydelsen, horfði ég aldrei þáttinn þegar hann var sýndur í Sjónvarpinu.

En af tinbyrjun (Ath. leiðrétting: "tilviljun") sá ég DVD box af honum í flugvelli í Kaupmannahöfn um daginn og ég keypti það. En DVD diskarnir voru með hvorki enskan texta né íslesnkan, heldur bara með danskan og norskan.

En – STÓR “EN” – ég var að byrja að læra dönsku fyrir mánuði síðan sjálfur. Það er bara að lesa textabók handa byrjanda sem er skrifuð á japönsku, he he.
Tounge

Ég er núna að horfa á Forbrydelsen með danskan texta. En vitið þig hvað?
Jeg kan forstå meget kun på dansk!!! Jeg er stolt af mig !!
Grin

Já, ok. kannski er danskan ekki svo erfitt tungumál í málfræði. Auk þess eru dösnk orð lík íslenskum orðum mikið. Svo er þetta ekkert sérstakt í raun, nema handa mér sjálfum !!

Þvert á móti, hvílíkur er sá erfiðleiki framburðar dönskunnar?
Devil
Á meðan ég er að horfa á Forbrydelsen, les ég sama textann sem er talaður. Samt get ég ekki tengt textann við talað mál. (Getið þið skilið hvað ég á við? Ég verð að læra íslensku betur líka 
Blush )

Allavega finnst mér þetta gaman og það er góð þjálfun í raun á dönsku. Ég ætla að horfa síðastu tvo þætti í kvöld.

Og ég dáist að Mary mikið, þar sem hún talar dönsku svona fínt eftir stutt námstímabil.
Heart

mbl.is Framhald á Forbrydelsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott hjá þér minn kæri.  Þegar stubburinn minn fór með okkur til Þýskalands fyrir tveimur árum þá níu ára, þá fékk hann að fara í heimsókn í grunnskóla þar með vinkonu sinni.  Hann talaði betri ensku en kennararnir.  Þau spurðu hann af hverju hann talaði svona góða ensku, úr sjónvarpinu sagði stráksi og þá setti hljóða, sérstaklega einn kennarinn, sem einmitt hafði varað börnin við of miklu sjónvarpsglápi sem gerði þau að heimskingjum.  Svo það er alls ekki alslæmt að horfa á sjónvarpið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.5.2008 kl. 11:51

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Gott hjá þér. Þú leggur þig fram um að læra íslenskuna og nú dönskuna.

tinbyrjun = tilviljun?

Bestu kveðjur,

T.N.

Theódór Norðkvist, 9.5.2008 kl. 15:17

3 Smámynd: Toshiki Toma

Takk, Theódór.
Þetta var ritvilla!  En þetta var vegna kærleysis mins, það var ekki AF TILVILJUN ! 

Toshiki Toma, 9.5.2008 kl. 15:26

4 Smámynd: Toshiki Toma

Sæll, Andrés.
Ertu orðinn "Bakemono"? he he. 

Sæl, Ásthildur.
Já, mér finnst TV nýtast vel til þess að læra tungumál. Og einnig getur TV gefið okkur "motivation" til að læra tungumál. Börnin mín tvö fengu ástæðu til þess að læra japönsku eflaust frá TV. "Ørnen" lét mér detta í hug (eða "lét mig detta í hug"? Hvort er rétt? Þetta ruglar mig alltaf. )  að prófa að læra dönsk.

Toshiki Toma, 9.5.2008 kl. 15:48

5 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Alltaf gaman að læra tungumál...

Það sem mér finst hins vegar strembið er ritmálið. Lærði ekki dönsku , norsku, sænsku, fyr en ég bjó í Noregi. Það var skemtilegur tími.

Vona að þér gangi jafn vel að læra og mér.

Ólafur Björn Ólafsson, 10.5.2008 kl. 00:19

6 Smámynd: Þuríður Björg Þorgrímsdóttir

Þú ert mjög hugrakkur...

Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 11.5.2008 kl. 01:24

7 identicon

Andrés myndi ég frekar halda að sé nisemono heldur en bakemono. Annars er danskan erfiðasta tunga heims (utan grænlenskunnar, auðvitað....).

Tomas (IP-tala skráð) 12.5.2008 kl. 12:05

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband